07.06.2018
Í gær, miðvikudaginn 6.júní afhentu krakkar úr 10.bekk Vogaskóla Umhyggju 100.000 krónur sem var ágóði af kaffisölu í tengslum við vorverkefni þeirra.Við þökkum þessum flottu krökkum frábært framtak!.
30.05.2018
Á aðalfundi Umhyggju, 15.maí síðastliðinn, var ný stjórn Umhyggju kjörin.Nýir stjórnarmeðlimir eru þau Regína Lilja Magnúsdóttir og Andrés Ragnarsson, en auk þeirra var Halldóra Inga Ingileifsdóttir endurkjörin.
09.05.2018
Að gefnu tilefni vill Umhyggja koma á framfæri að félagið stendur ekki fyrir símasöfnun fyrir langveik börn þessa dagana.Við höfum fengið fyrirspurnir vegna slíkra símtala og viljum því ítreka að það er ekki Styrktarsjóður langveikra barna á vegum Umhyggju sem um ræðir.
18.04.2018
Aðalfundur Umhyggju verður haldinn 15. maí næstkomandi, kl.20.00, í húsnæði félagsins að Háaleitisbraut 13, 4.hæð. Tillögur að framboðum í stjórn Umhyggju skulu berast eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund, (8.
16.04.2018
Við minnum á aðalfund Umhyggju sem haldinn verður þriðjudagskvöldið 17.apríl kl.20 í húsnæði félagsins að Háaleitisbraut 13.
16.04.2018
Ákveðið hefur verið að aflýsa aðalfundi Umhyggju, sem halda átti þriðjudaginn 17.apríl, þar sem ekki var farið að ítrustu kröfum í lögum félagsins við boðun fundarins.
10.04.2018
Við minnum á að aðalfundur Umhyggju verður haldinn þriðjudaginn 17.apríl næstkomandi, kl.20.Fundað verður í húsnæði félagsins að Háaleitisbraut 13, 4.hæð. Kosningarétt hafa allir þeir sem eru skráðir félagar í Umhyggju og skuldlausir við félagið, a.
02.04.2018
Smelltu á myndina til að nálgast rafræna útgáfu blaðsins, en þema blaðsins að þessu sinni eru kynningar aðildarfélaganna.
27.03.2018
Í vikunni sem leið var Barnaspítala Hringsins formlega afhent svokallað Medical Home, eða miðlæg skráning, fyrir langveik börn.Um er að ræða viðmót ætlað sjúkrarskrárkerfi sem Umhyggja kostaði og vann í samstarfi við Embætti landlæknis og TM software, og er rafræn samantekt sem aðgengileg er öllum heilbrigðisstarfsmönnum.
21.03.2018
Aðalfundur Umhyggju - félags langveikra barna verður haldinn 17.apríl næstkomandi kl.20.00 í húsnæði félagsins að Háaleitisbraut 13, 4.hæð.