Pálínuhús - íbúð í Reykjavík

Umhyggja á nýja íbúð í Kuggavogi 15, 104 Reykjavík. Íbúðin er vel útbúin með sjúkrarúmi, lyftara, hjólastólaaðgengi og stóru bílastæði í bílakjallara. Íbúðin er ætluð til afnota fyrir fjölskyldur langveikra barna utan af landi sem þurfa að sækja þjónustu til Reykjavíkur vegna barna sinna, svo sem greiningar, læknisheimsóknir, sjúkrahúsdvalir o.fl.

Í íbúðinni eru tvö svefnherbergi, annað búið hjónarúmi með miklum og góðum skápum og hitt búið sjúkrarúmi og lyftara. Í stofunni er svefnsófi.

  • Gestir þurfa sjálfir að koma með handklæði og rúmföt. Í íbúðinni eru sængur, koddar, tuskur og viskastykki.