Með Umhyggjugjöf, jólagjafabréfi Umhyggju, gleðurðu viðtakandann um leið og þú styður við fjölskyldur langveikra barna á Íslandi. Ferlið er einfalt: Þú fyllir út eyðublaðið hér að neðan, greiðir valda upphæð í gegnum örugga greiðslusíðu, við sendum þér svo gjafabréfið í tölvupósti sem þú getur prentað út. Tilvalin gjöf fyrir öll þau sem þér þykir vænt um!
Myndirnar sem prýða jólaútgáfu gjafabréfanna eru handteiknaðar af Álfdísi Jóhannsdóttur.