Umhyggja á glæsilegt orlofshús í Brekkuskógi í uppsveitum Árnessýslu.
Húsið er 92 fm á einni hæð með 3 svefnherbergjum, baðherbergi og opnu rými sem er stofa, borðstofa og eldhús. Húsið er aðgengilegt hjólastólum og er búið sjúkrarúmi og lyftara.
Í öllum herbergjum eru tvíbreið rúm og er svefnaðstaða fyrir 8 manns auk rúms fyrir ungabarn.
Pallurinn kringum húsið er 75 fm með garðhúsgögnum, gasgrilli og aðgengilegur hjólastólum. Þar er einnig heitur pottur og rampur niður á stóra grasflöt. Í garðinum eru trampolín og leiktæki.
Í húsinu eru þvottavél, uppþvottavél og Nespresso kaffivél (athugið að taka þarf með eigin kaffihylki), sjónvarp og WiiSwitch leikjatölva. Í húsinu er einnig þráðlaust internet auk rafhleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla. Gestir þurfa sjálfir að koma með snúru/tengil fyrir hleðslustöð.
Athugið að gestir þurfa sjálfir að koma með lök, sængurver, handklæði og sápu.
Við biðjum ykkur vinsamlegast um að kynna ykkur umgengnisreglur orlofshúsa Umhyggju áður en dvöl ykkar hefst, en þær má finna hér.