Félagsmenn Umhyggju hafa aðgang að tveimur glæsilegum orlofshúsum. Húsin eru staðsett í Brekkuskógi rétt fyrir austan Laugarvatn og í Vaðlaborgum við Akureyri.
Orlofshúsin eru leigð út viku í senn yfir sumartímann frá 30. maí til 29. ágúst. Skiptidagar eru á föstudögum. Verð fyrir vikudvöl er kr.25.000.
Sækja skal um fyrir 15.mars og eru umsóknir ekki teknar til meðferðar fyrir en eftir þann tíma. Niðurstaða úthlutunar mun liggja fyrir í síðasta lagi fimmtudaginn 10. apríl. Fjölskyldur langveikra og hreyfihamlaðra barna 18 ára og yngri hafa forgang, og ganga þeir fyrir sem ekki fengu úthlutun sumarið á undan.
Reglur um úthlutun orlofshúsa