Systkinasmiðja fyrir 8 - 12 ára, skráning hafin

Helgina 30. apríl til 1. maí mun Umhyggja í samstarfi við Systkinasmiðjuna standa fyrir grunnnámskeiði fyrir systkini langveikra barna á aldrinum 8 til 12 ára. Hópurinn hittist laugardaginn 30. apríl og sunnudaginn 1. maí frá kl.10 til 13. 

Umhyggja niðurgreiðir námskeiðið að stórum hluta en kostnaður sem kemur í hlut hvers þátttakanda er kr.3500. Greiðsluseðill er sendur í heimabanka forráðamanns eftir á skráning á sér stað. Laus pláss á námskeiðinu eru 12.

SKRÁNING

Systkinasmiðjan er námskeið fyrir krakka á aldrinum 8 - 12 ára sem eiga það sameiginlegt að eiga systkini með sérþarfir. 

Við leysum saman ýmis verkefni, ræðum um stöðu okkar innan fjölskyldunnar, skólans og meðal vina. Við ræðum um hvernig við leysum úr erfiðleikum sem verða á vegi okkar, meðal annars vegna systkina okkar.

Þessa þætti nálgumst við í gegnum ýmsa skemmtilega leiki og verkefni þar sem aðalatriðið er að hvert og eitt barn fái að njóta sín.

Námskeið Systkinasmiðjunnar eru ekki hugsuð sem meðferðarúrræði fyrir börn sem eiga í erfiðleikum heldur fyrst og fremst til að hjálpa börnum að tjá sig um reynslu og upplifun sína af því að eiga systkini með sérþarfir. 

Markmið námskeiðsins eru: 

  • að veita systkinum barna með sérþarfir tækifæri til að hitta önnur systkini í skipulögðu og skemmtilegu umhverfi.
  • að veita börnunum tækifæri til að ræða við jafnaldra sína á jákvæðan hátt um margt sem tengist því að eiga systkini með sérþarfir. 
  • að veita börnunum innsýn í það hvernig megi takast á við þær margbreytilegu aðstæður sem fylgja því að eiga systkini með sérþarfir. 
  • að veita börnunum tækifæri til að læra meira um fötlun eða veikindi systkina sinna. 

 

Námskeiðið verður haldið 30. apríl - 1. maí á Háaleitisbraut 13.

Athugið að framhaldsnámskeið fyrir þá sem komu á grunnnámskeið í haust er fyrirhugað í júní og verður auglýst bráðlega. Einnig er fyrirhugað að búa til unglingahóp fyrir 13 - 15 ára. Áhugasamir um slíkt eru beðnir að hafa samband við skrifstofu  Umhyggju, info@umhyggja.is eða í síma 5524242.