Á aðalfundi Umhyggju, 15. maí síðastliðinn, var ný stjórn Umhyggju kjörin. Nýir stjórnarmeðlimir eru þau Regína Lilja Magnúsdóttir þroskaþjálfi og Andrés Ragnarsson sálfræðingur en auk þeirra var Halldóra Inga Ingileifsdóttir stjórnarmaður í Umhyggju endurkjörin.
Skipan stjórnar er eftirfarandi:
Regína Lilja Magnúsdóttir, formaður
Andrés Ragnarsson, ritari
Fríða Magnúsdóttir, meðstjórnandi
Fróði Kristinsson, gjaldkeri
Guðrún Bryndís Guðmundsson, meðstjórnandi
Halldóra Inga Ingileifsdóttir, meðstjórnandi
Sif Hauksdóttir, varaformaður
Við óskum nýrri stjórn til hamingju með kjörið og velfarnaðar í starfi.