Áheitasöfnun í tengslum við Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka hefur undanfarin ár verið ein helsta tekjulind margra af aðildarfélögum Umhyggju og skiptir hún sköpum í þeirra starfi. Í ár hefur maraþonið því miður verið blásið af vegna COVID-19, en í staðinn hvetjum við hlauparana til að hlaupa sína eigin leið þann 22. ágúst og ykkur hin til að heita á þá og láta í leiðinni gott af ykkur leiða.
Lista yfir aðildarfélögin má sjá hér á vefsíðunni og hægt er að skrá sig til leiks á www.rmi.is
Við treystum á ykkur gott fólk, koma svo!