Nú í vetur mun Umhyggja í samstarfi við Systkinasmiðjuna bjóða upp á námskeið fyrir systkini langveikra barna. Við hefjum samstarfið á kynningarfundi fyrir foreldra sem tilheyra Umhyggju sem haldinn verður á Zoom 13. október kl.20:00. Kynningarfundurinn er foreldrum að kostnaðarlausu.
Systkinasmiðjan er námskeið fyrir krakka á aldrinum 8 - 14 ára sem eiga það sameiginlegt að eiga systkini með sérþarfir.
Við leysum saman ýmis verkefni, ræðum um stöðu okkar innan fjölskyldunnar, skólans og meðal vina. Við ræðum um hvernig við leysum úr erfiðleikum sem verða á vegi okkar, meðal annars vegna systkina okkar.
Þessa þætti nálgumst við í gegnum ýmsa skemmtilega leiki og verkefni þar sem aðalatriðið er að hvert og eitt barn fái að njóta sín.
Námskeið Systkinasmiðjunnar eru ekki hugsuð sem meðferðarúrræði fyrir börn sem eiga í erfiðleikum heldur fyrst og fremst til að hjálpa börnum að tjá sig um reynslu og upplifun sína af því að eiga systkini með sérþarfir.
Markmið námskeiðsins eru:
Fyrsta námskeiðið verður haldið 5.- 7. nóvember á Háaleitisbraut 13 en kynningafundur fyrir foreldra verður haldin 13. október klukkan 20:00 á Zoom. Hlekkur inn á kynningarfundinn: https://us05web.zoom.us/j/85676900857?pwd=Z0lBNWl4QVVHdWR4RVlLRCtZRXNJdz09