Við hjá Umhyggju erum þakklát og meyr eftir helgina, en laugardaginn 24. september afhenti hjólalið Team Rynkeby Ísland Umhyggju kr. 35.310.463 krónur sem söfnuðust með aðstoð fyrirtækja og almennings í landinu.
Undanfarið ár hefur liðið hjólað af miklum móð bæði innanlands sem utan í þeim tilgangi að safna fé til handa langveikum börnum með alvarlega sjúkdóma, einkum til að styðja við rannsóknartengd verkefni. Í vetur sem leið fóru æfingarnar fram hérlendis í misgóðu veðri og mismiklum vindi, á milli þess sem unnið var að söfnuninni með aðstoð fyrirtækja og almennings. Í júlí síðastliðnum lá svo leiðin yfir á meginland Evrópu og hjólaði liðið á einni viku frá Kolding í Danmörku til Parísar í Frakklandi, alls 1300 kílómetra. Liðið var skipað 41 hjólara og 10 manna aðstoðar- og fylgdarliðið. Hjólararnir eru á ýmsum aldri og höfðu margir þeirra aldrei sest á racer í upphafi vetrar!
Takk elsku Team Rynkeby og allir sem lögðu hönd á plóg í þessari vegferð!