Systkinasmiðjur í Reykjavík 27.og 28. janúar

ATH: Fullt er orðið og búið að loka fyrir skráningu í yngri hópinn. Skráning stendur enn yfir í eldri hópinn.

Systkinasmiðjur verða haldnar í Reykjavík helgina 27. - 28. janúar næstkomandi. Um er að ræða samstarf Systkinasmiðjunnar og Umhyggju og eru smiðjurnar ætlaðar systkinum langveikra barna. Smiðjurnar skiptast eftir aldri þannig að yngri hópur 8-12 ára (f. 2012-2015) hittist laugardag og sunnudag kl. 10-13 og eldri hópur 12-14 ára (f. 2009-2011) hittist laugardag og sunnudag kl.13.30-15.30. Smiðjurnar skiptast eftir aldri þannig að yngri hópur 8-12 ára (f. 2012-2015) hittist laugardag og sunnudag kl. 10-13 og eldri hópur 12-14 ára (f. 2009-2011) hittist laugardag og sunnudag kl.13.30-15.30. Staðsetning: Háaleitisbraut 13, 4. hæð.

Umhyggja niðurgreiðir námskeiðið að stórum hluta en kostnaður sem kemur í hlut hvers þátttakanda er kr. 2000. Greiðsluseðill er sendur í heimabanka forráðamanns eftir á skráning á sér stað. Laus pláss á námskeiðinu eru 12. 

Athugið að lágmarksþátttaka til að námskeiðið verði haldið eru 8 börn á hvort námskeið.

SKRÁNING

Systkinasmiðjan er námskeið fyrir krakka sem eiga það sameiginlegt að eiga systkini með sérþarfir.

Við leysum saman ýmis verkefni, ræðum um stöðu okkar innan fjölskyldunnar, skólans og meðal vina. Við ræðum um hvernig við leysum úr erfiðleikum sem verða á vegi okkar, meðal annars vegna systkina okkar.

Þessa þætti nálgumst við í gegnum ýmsa skemmtilega leiki og verkefni þar sem aðalatriðið er að hvert og eitt barn fái að njóta sín.

Námskeið Systkinasmiðjunnar eru ekki hugsuð sem meðferðarúrræði fyrir börn sem eiga í erfiðleikum heldur fyrst og fremst til að hjálpa börnum að tjá sig um reynslu og upplifun sína af því að eiga systkini með sérþarfir.

Markmið námskeiðsins eru:

  • að veita systkinum barna með sérþarfir tækifæri til að hitta önnur systkini í skipulögðu og skemmtilegu umhverfi.
  • að veita börnunum tækifæri til að ræða við jafnaldra sína á jákvæðan hátt um margt sem tengist því að eiga systkini með sérþarfir.
  • að veita börnunum innsýn í það hvernig megi takast á við þær margbreytilegu aðstæður sem fylgja því að eiga systkini með sérþarfir.
  • að veita börnunum tækifæri til að læra meira um fötlun eða veikindi systkina sinna.