Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um orlofshús Umhyggju í Brekkuskógi og Vaðlaborgum yfir jól og áramót 2024. Umsóknarfrestur rennur út 1. október og verða allar umsóknir teknar í úthlutunarferli eftir þann tíma. Niðurstöðu úthlutunar er að vænta í kringum 10. október.
Orlofshúsin eru leigð annars vegar frá 23. - 28. desember (jól) og hins vegar 28. desember til 2. janúar (áramót).
Umsóknareyðublaðið má finna undir ,,orlofshús'' hér á heimasíðu Umhyggju eða með því að smella hér.