Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, hefur ákveðið að styrkja átta líknar- og stuðningsfélög sjúkra. Þá ákvað ráðherra að styrkja Foreldrasímann með 500 þúsund króna framlagi.
Eftirfarandi fengu styrki heilbrigðisráðherra, samtals fimm milljónir króna:
- ADHD - félagið – til starfsemi félagsins 500.000
- Sjálfstyrkingarfélagið Höndin - til starfsemi félagsins 200.000
- Félag heyrnarlausra – til að styrkja tengsl við geðdeild Landspítalans 500.000
- Mæðrastyrksnefnd – styrkur 1.000.000
- Umhyggja – til að styrkja fjölskyldur langveikra barna sem eiga í fjárhagserfiðleikum 1.000.000
- MND – til starfsemi félagsins 500.000
- Ljósið, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð - til starfsemi félagsins 1.000.000
- Hugarafl – til starfsemi félagsins 300.000