Hægt að sækja um 2ja nátta dvöl í Borgarnesi

Ertu foreldri langveiks barns með miklar stuðningsþarfir? Þarftu að komast í „hvíldarinnlögn“?

Foreldrar langveikra barna geta nú í vetur sótt um 2ja nátta gistingu í vel útbúinni og uppábúinni íbúð í Borgarnesi sér að kostnaðarlausu. Um er að ræða einstakt framlag velunnara félagsins til foreldra langveikra barna innan Umhyggju og aðildarfélaga og fer umsóknarferlið í gegnum skrifstofu Umhyggju. Dvölin er eingöngu ætluð til hvíldar fyrir foreldra og því ekki gert ráð fyrir að börn komi með.

Hægt er að sækja um hér, en gert er ráð fyrir að fólk rökstyðji umsóknina og lýsi aðstæðum sínum til að tryggja að íbúðinni sé úthlutað til þeirra sem mest þurfa á að halda.