Fræðslufundur Lindar mánudaginn 30. september

Mánudaginn 30. september næstkomandi stendur Lind - félag fólks með meðfædda ónæmisgalla/mótefnaskort fyrir fræðslufundi milli kl.17 og 20 í fundarsal Fastus, Höfðabakka 7. Fundurinn er ætlaður sjúklingum, aðstandendum, heilbrigðisstarfsfólki og öðrum áhugasömum. Áhugaverð fræðsluerindi verða haldin og boðið upp á léttar veitingar.

Við hvetjum alla sem láta sig málefnið varða til að mæta!