Bætt aðgengi í Jólaskógi

Umhyggja og CP félagið standa fyrir sýningum á Ævintýri í jólaskógi með bættu aðgengi þann 11. des í Elliðaárdalnum á milli klukkan 17:00-18:10.

Sýningar hefjast á 10 mínútna fresti og tekur hver leiksýning um það bil klukkkutíma. Áhorfendur ferðast í litlum hópum um Elliðaárdalinn, vopnaðir vasaljósum og hitta á ferðum sínum persónur úr jólafjölskyldu okkar Íslendinga.

Miðaverð er 1.000 kr. og frítt fyrir börn undir 2 ára.

  • Sýningin hentar öllum sem þurfa bætt aðgengi, hvort sem um er að ræða börn eða fullorðna. Áhorfendur eru hvattir til að klæða sig eftir veðri og mæta með vasaljós.
  • Hægt er að kaupa miða á tix.is: https://tix.is/event/18701/baett-adgengi-i-jolaskogi