Afmælis- og styrktarmót

Það yljar okkur um hjartarætur að taka á móti svona fallegum styrk eins og okkur var afhentur nú í sumar eftir vel heppnað afmælis- og styrktarmót sem hún Hrefna Birgitta hélt í tilefni 70 ára afmælis. Styrkurinn var til minningar um barnabarn hennar sem hefði orðið 10 ára 4. júlí sl.  Styrkurinn mun nýtast við áframhaldandi störf Umhyggju í þágu langveikra barna og fjölskyldna þeirra.