Velferðarráðuneytið hefur sent frá sér áfangaskýrslu til umsagnar, þar sem fjallað er um tillögur starfshóps sem vinnur að endurskoðun löggjafar um fjárhagslegan stuðning til fjöskyldna fatlaðra og langveikra barna. Umsagnarfrestur er til 12. mars næstkomandi.
Var starfshópnum falið að fara yfir lög nr. 22/2006 um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna og ákvæði 4. gr. laga um félagslega aðstoð nr. 99/2007 sem kveður á um umönnunargreiðslur til framfærenda fatlaðra barna.
Í áfangaskýrslu starfshópsins eru settar fram tillögur sem hafa það að markmiði að einfalda kerfið um fjárhagslegan stuðning til fjölskyldna fatlaðra og langveikra barna, auka áherslu á umönnun í stað læknisfræðilegrar greiningar og aðgreina greiðslur sem byggðar eru annars vegar á umönnun barnsins og hins vegar á kostnaði.
Starfshópurinn var skipaður í janúar 2015 og í honum sitja Rakel Dögg Óskarsdóttir, formaður, Ágúst þór Sigurðsson og Hildur Sverrisdóttir, lögfræðingar í velferðarráðuneytinu, Ragna K. Marinósdóttir, fulltrúi Umhyggju – félags langveikra barna, Friðrik Sigurðsson, fulltrúi Landssamtakanna Þroskahjálpar og Hjörtur Heiðar Jónsson, fulltrúi Öryrkjabandalags Íslands.
Hægt er að skoða skýrsluna og koma umsögnum á framfæri á Samráðsgátt stjórnvalda .