Aðalfundur Umhyggju – félags langveikra barna verður haldinn þriðjudaginn 16. maí næstkomandi, kl. 17.00, í húsnæði Umhyggju, Háaleitisbraut 13, 4. hæð.
Laus sæti til kosningar eru eitt sæti áhugamanns, eitt sæti fagmanns og þrjú sæti foreldra.
Tillögur að framboðum í stjórn Umhyggju skulu berast eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund (9. maí í síðasta lagi) á netfang skrifstofu Umhyggju, umhyggja@umhyggja.is.
Tillögur að lagabreytingum skulu berast skrifstofu Umhyggju eigi síðar en 21 degi fyrir aðalfund (25. apríl í síðasta lagi).
Við vekjum athygli á því að aðeins þeir sem eru félagsmenn og hafa greitt félagsgjöld a.m.k. 14 dögum fyrir aðalfund (2. maí í síðasta lagi) hafa atkvæðisrétt.
Fyrir hönd stjórnar Umhyggju,
Margrét Vala Marteinsdóttir, stjórnarformaður